Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 16:11:14 (8279)

2004-05-15 16:11:14# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, BÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[16:11]

Birgir Ármannsson (andsvar):

Herra forseti. Ég tel alveg afdráttarlaust að það geti ekki átt við að fjölmiðlafyrirtækið sé þarna undir. Þetta snýst um heimild markaðsráðandi fyrirtækis eða annars fyrirtækis til að eignast hlut í fjölmiðlafyrirtæki þannig að það væri að mínu mati fráleit túlkun að telja fjölmiðlafyrirtækið með í þeirri heildarveltu sem hámarkið vísar til.