Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 16:29:36 (8283)

2004-05-15 16:29:36# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[16:29]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tel mjög mikilvægt að við berum tilhlýðilega virðingu fyrir skoðunum og sannfæringu manna þegar stjórnarskrá íslenska lýðveldisins er annars vegar. Við eigum að taka varnaðarorð sem fram eru sett þar að lútandi alvarlega. Það vil ég gera, hvaða skoðun sem ég hef sjálfur myndað mér á málinu.