Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 17:55:02 (8316)

2004-05-15 17:55:02# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[17:55]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Eins og ég hef áður sagt, frú forseti, er ég tilbúinn til þess að haga fjármálum flokka þannig, ef um það er samstaða, að fyrirtæki geti ekki styrkt flokkana og þeir verði eingöngu reknir fyrir félagsgjöld félagsmanna sinna. Ég er tilbúinn til þess að fara þá leið og hef margoft lýst því yfir.