Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 17:55:59 (8318)

2004-05-15 17:55:59# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[17:55]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt að ítreka það að þegar þau mál voru rædd á almennum grundvelli hér síðast var það gert á grundvelli skýrslu nefndar sem allir þáverandi stjórnmálaflokkar áttu sæti í og komust allir að sameiginlegri niðurstöðu. Það er þess vegna vonlaust að reyna að færa mál af þessu tagi í fang Sjálfstfl. sérstaklega. Þetta eiga menn að viðurkenna og þekkja.