Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 17:58:34 (8321)

2004-05-15 17:58:34# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[17:58]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Hæstv. forseti. Menn geta talað lengi um mál sem er vanreifað til þess að sýna fram á hvers vegna svo er. Og það hefur komið fram, þótt ég sé ekki í þeim hópi, að mjög margir, bæði innan þings og lögspekingar utan þingsins, hafa varað við því að frv. verði samþykkt vegna þess að það brjóti í bága við stjórnarskrá lýðveldisins. Ég tel að við eigum að taka slík varnaðarorð alvarlega og gefa okkur tíma og ráðrúm til að ganga úr skugga um hvað er hið rétta í því efni.