Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 18:39:17 (8330)

2004-05-15 18:39:17# 130. lþ. 116.2 fundur 786. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (afnám gjalda) frv. 51/2004, GAK (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[18:39]

Guðjón A. Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég skrifaði undir nefndarálitið með fyrirvara. Þær upplýsingar sem vonast var eftir liggja ekki fyrir hvað varðar tekjustreymi af auðlindagjaldinu og hvernig afkoma ríkissjóðs tengist því við niðurfellingu á þróunarsjóðsgjaldinu og í ljósi þess munu þingmenn Frjálsl. sitja hjá við afgreiðslu málsins.