Framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

Mánudaginn 17. maí 2004, kl. 10:20:08 (8351)

2004-05-17 10:20:08# 130. lþ. 118.2 fundur 997. mál: #A framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum# (verðsamráð í mjólkuriðnaði) frv. 85/2004, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 130. lþ.

[10:20]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil benda hv. þingmanni á að það eru til útvegsbændur svo að þeir hafa kannski búist við því að bátafrv. kæmi fyrr á dagskrá. Annars hefur það komið fram hjá einum formanni eins þingflokksins að alþingismenn eru illa undir það búnir að ræða 2. og 3. dagskrármálið þar sem þeir hafa ekki kynnt sér það nægilega svo að ég vil gefa hv. þingmönnum rúm til að kynna sér þessi mál til kl. 11 og verður þá fundi fram haldið.