Bryndís Hlöðversdóttir:
Virðulegur forseti. Ég tel mikilvægt að hæstv. forseti svari þeim spurningum sem til hans er beint um hvenær megi vænta þess að fjölmiðlamálið verði tekið fyrir á dagskrá fundarins. Það var á dagskrá í gær og í dag.
Í fréttum í gær var tilkynnt mikið samkomulag á milli stjórnarflokkanna, sem forustumenn stjórnarflokkanna sjá mikla ástæðu til að brosa yfir, þá kannski einkum formaður Framsfl., hæstv. utanrrh. Halldór Ásgrímsson sem lýsir yfir að það sé endanlegt, reyndar í þriðja sinn. Þau orð hans hafa reyndar ekki jafnmikið vægi og áður, virðulegur forseti, að nú sé loksins komin mikil sátt um þetta í Framsfl. Reyndar undanskildi hann einn þingmann, hv. þm. Kristin H. Gunnarsson, en að öðru leyti væri mikil sátt og samlyndi og færi þetta allt að ganga í gegn. Það kom hins vegar í ljós í morgun í fréttum útvarps að a.m.k. einn þingmaður framsóknarmanna, hv. þm. Jónína Bjartmarz, er enn að skoða tillögurnar. Hún er ekki tilbúin að lýsa því yfir að hún sé sátt við þessar tillögur.
Á fundi allshn. í gær stóð til að kynna þessar tillögur. Það var ekki gert. Hv. formaður nefndarinnar, hv. þm. Bjarni Benediktsson, sagði reyndar að hann teldi æskilegt að þessar tillögur yrðu ræddar í allshn. áður en málið kæmi til 3. umr. og áður en málið yrði tekið fyrir aftur en að hann gæti ekkert fullyrt um að svo yrði.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé mikilvægt að við fáum úr þessu skorið. Hv. formaður allshn. hafði áður fallist á að málið yrði tekið upp á milli 2. og 3. umr. Við lesum síðan í Morgunblaðinu að engu hafi verið lofað um það. Það verður að segjast eins og er, virðulegi forseti, að það er útilokað í rauninni að átta sig á því hvað er að gerast í höfðinu á hæstv. ríkisstjórn. Ég held að það sé kominn tími til að menn sýni þessar tillögur og málið komi til 3. umr. og verði klárað ef raunin er sú sem menn hafa lýst yfir.