Birkir J. Jónsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Mér þótti vænt um að hv. þm. Jóhann Ársælsson skyldi nefna Mjóafjörð sem dæmi hvað varðar undantekningu í sveitarstjórnarlögum. Þar býr margt mjög gott fólk og vel meinandi og þangað kem ég reglulega. Ég held að ég hv. þm. séum að mörgu leyti sammála. Ég er á því, ef það hefur ekki komið skýrt fram, að það megi alveg hækka mörkin. Það sem ég hef einfaldlega sagt í þessari umræðu er að ég hef ekki enn þá myndað mér skoðun um hvar þau mörk eiga að liggja en eins og ég benti á áðan hefur hæstv. ráðherra sagt að honum finnist koma til greina að hækka mörkin að einhverju leyti.