Björgvin G. Sigurðsson (andsvar):
Frú forseti. Hv. þm. fór um víðan völl í tilraun sinni til að sauma saman heildstæða málsvörn fyrir þá sem fylgja frv. forsætisráðherra um lög á fjölmiðla. Hann ræddi töluvert um stjórnarskrána og stjórnarskrárbrot og því vildi ég beina fyrirspurn til þingmannsins varðandi þau mörgu álit frá lögmönnum sem borist hafa og öll styðja að um stjórnarskrárbrot sé að ræða og höftin á prentfrelsinu sem frv. ber með sér vegi að mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Hins vegar hefur ekki eitt einasta álit komið til nefnda þingsins sem styður að svo sé ekki. Allt bendir til þess að hér sé um gróf stjórnarskrárbrot að ræða þar sem vegið sé að tjáningarfrelsinu og prentfrelsinu. Því vildi ég fá aðeins ítarlegri og rökstuddari skýringar á því að hann telji að hér sé ekki um stjórnarskrárbrot að ræða. Mér virðist svo augljóst að um stjórnarskrárbrot sé að ræða þegar vegið er að tjáningarfrelsinu og prentfrelsinu og krossmiðlun með banni á krossmiðlun.