Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 24. maí 2004, kl. 13:59:42 (8862)

2004-05-24 13:59:42# 130. lþ. 123.1 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, KJúl (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur, 130. lþ.

[13:59]

Katrín Júlíusdóttir:

Virðulegi forseti. Með setu minni á Alþingi vil ég taka þátt í því að skapa hér sanngjarnt og heiðarlegt og frjálslynt lýðræðisríki. Mér finnst frv. vega að rótum þeirrar hugmyndafræði og því lýsi ég mig algerlega andvíga því og segi því nei.