Jóhanna Sigurðardóttir (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Minni hlutinn er jákvæður gagnvart þeirri kerfisbreytingu sem felst í frv. en gagnrýnir að ekki hafi gefist meiri tími til að fara yfir ýmis óvissuatriði varðandi framkvæmdirnar, bæði sem snúa að kjörum lántakenda, mati á vaxtaáhættu sjóðsins og áhrifum á lána- og peningamarkaðinn. Mikil óvissa ríkir líka um hvaða áhrif þessar breytingar hafa á lánskjörin, t.d. ýmis viðbótargjöld sem lögð verða á lántakendur, eins og heimild til stórfelldrar gjaldtöku vegna uppgreiðsluákvæðis í 12. gr. frv.
Minni hlutinn mun styðja þau ákvæði frv. sem eru til bóta, greiða atkvæði gegn uppgreiðsluákvæði 12. gr. en vísa að öðru leyti ábyrgðinni á framkvæmdinni til stjórnar meiri hlutans.