Jón Bjarnason (andsvar):
Frú forseti. Hér er á ferðinni allt annað frv. og alveg nýtt mál inni á þingi sem fjallar um að leggja sóknardagakerfið niður. Ég vissi ekki annað en yfirlýst stefna stjórnvalda til þessa væri sú að ná ætti sátt við eigendur sóknardagabáta, treysta þennan veiðiflota í sessi og finna honum öruggan og fastan rekstrargrundvöll. Finnst hv. þm. Guðjóni Hjörleifssyni það vera sátt að slátra honum?