Mörður Árnason (um atkvæðagreiðslu):
Forseti. Þetta furðulega frv. er sprottið af kreddu í umhvrn. og hjá hæstv. umhvrh. Það eykur enn á undarleik þess að umhvrh. hefur trassað og farið á svig við þau lög að skipa þá stjórn sem lagt er til að verði lögð niður í frv. Við teljum og byggjum á umsögnum um frv. að það sé ekki bara óþarft heldur vinni á móti Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samstarfi um norðurslóðir að leggja þessa stjórn niður og höfum lagt til, stjórnarandstæðingar í umhvn., að frv. verði fellt. Ég segi nei.