Össur Skarphéðinsson:
Frú forseti. Hæstv. forsrh. hefur mælt fyrir þáltill. um frestun Alþingis. Hann mælir fyrir henni í kjölfar þess að hér hafa verið einhverjir mestu átaka- og umbrotatímar á Alþingi um ákaflega mörg ár. Hér hafa verið mjög harðar umræður og deilur um fjölmiðlafrv. sem nú er illu heilli orðið að samþykktum lögum héðan af hinu háa Alþingi.
Um þetta mál hefur ríkt mikil óvissa. Hún stafar ekki síst af því að hæstv. ráðherrar hafa tekið þátt í umræðu í kjölfar þessa frv. með þeim hætti að frekar hefur aukið á óvissuna í kringum málið. Hæstv. fjmrh. hélt ræðu á mánudagskvöldið þar sem hann gerði að umræðuefni þann möguleika að forseti lýðveldisins kynni að synja samþykktar á því frv. Hæstv. forsrh. hefur sömuleiðis lagt sitt til málanna eins og alþjóð er kunnugt. Hæstv. forsrh. skrifaði heila grein í opnu Morgunblaðsins um einmitt hugsanlegar afleiðingar af þeim atburði og við þekkjum öll yfirlýsingar hæstv. forsrh. síðasta sólarhringinn um það hlutverk sem hann telur að hann kynni að taka sér ef slík atburðarás færi af stað.
Það er sömuleiðis ekki til að stilla málið að hæstv. forsrh. hefur ekki enn sent lögin til staðfestingar eða synjunar hjá forseta lýðveldisins. Enn fremur hefur hann gert uppskátt að það kunna að líða 10 dagar frá samþykkt laganna hér þangað til hann sendir lögin til forseta lýðveldisins. Allt hefur þetta aukið mjög á óvissuna í málinu. Það verður að segjast, herra forseti, að það er margt sem bendir til þess að hæstv. forsrh. sé að tefja það mál þangað til þingið hefur hætt störfum, hv. þm. farnir til síns heima og búið að fresta fundum Alþingis. Ég tók þetta mál upp í morgun og spurði hæstv. forsrh. hreint út um þessi mál. Það verður að segjast alveg eins og er að svör hæstv. forsrh. voru slík að ekkert varð af þeim ráðið. Það varð ekki til þess að draga úr þessari óvissu. Ég vil þess vegna spyrja hæstv. forsrh. aftur þannig að ekkert orki tvímælis í þessu máli: Hvenær hyggst hæstv. forsrh. senda forseta lýðveldisins lög Alþingis til staðfestingar?
Ég tel að það mundi greiða mjög fyrir málum og það yrði líka til að lægja öldur sem hafa risið út af þessu máli í samfélaginu ef hæstv. forsrh. gerði hreint fyrir sínum dyrum og segði okkur frá því hvenær hann ætlar að gera það. Ella læðist að okkur sá grunur og hlýtur að verða áleitinn að hæstv. forsrh. sé að bíða með það mál þangað til búið verður að fresta fundum Alþingis.