Frsm. minni hluta landbn. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég kem aðeins í ræðustólinn til að reyna að leiðrétta smámisskilning sem mér fannst vera uppi hjá hv. þm., þ.e. hv. þm. vísaði talsvert til fortíðarinnar og sagði að hún hefði bara verið nokkuð góð. Við skulum fallast á það að fortíðin hafi verið nokkuð góð, sérstaklega eftir aðkomu BSRB og ASÍ að verðlagsnefndinni. En vandinn, hv. þm., er sá að nú þýðir ekkert að benda á þennan tíma vegna þess að það á að afnema það kerfi sem hefur virkað vel undanfarin ár og það er það sem verið er (Gripið fram í.) að benda á og það á að afnema það að verðlagsnefndin taki ákvörðun um verð til framleiðenda. (Landbrh.: Það er ekkert í þessu. Það er bara heimildarákvæði, það ... frv.)
Virðulegi forseti. Ég er í andsvari við hv. þm. Jón Bjarnason en mjólkursamningurinn sem kemur til umræðu á eftir kveður á um þetta og það er mikilvægt að hæstv. landbrh. þekki þau mál til hlítar sem hann er að flytja, það skiptir miklu máli. En ég er í andsvari við hv. þm. Jón Bjarnason og á án efa eftir að ræða við hæstv. landbrh. frekar en ég vildi aðeins hnykkja á þessu. Það er verið að breyta því fyrirkomulagi sem hefur reynst vel og það er það sem verið er að vekja athygli á í stað þess að verðlagsnefndin sé enn þá virkari til framleiðenda, á að aftengja það. Af því höfum við áhyggjur.