Jón Bjarnason:
Frú forseti. Með frv. um afnám laga um jöfnun flutningskostnaðar á sementi sýnir ríkisstjórnin í verki hug sinn til jöfnunar á flutningskostnaði úti um land.
Skipaðar hafa verið nefndir og safnað hefur verið saman skýrslum um misrétti sem landsmenn búa við varðandi flutningskostnað eftir búsetu. Þær skýrslur sýna verulegt og vaxandi misrétti sem landsmenn búa við hvað varðar álag á kostnað og rekstur fyrirtækja og heimila með háum flutningsgjöldum.
Talað hefur verið um að grípa til aðgerða, jöfnunaraðgerða, lækka skatta ríkisins af flutningnum eða að jafna hann út á einn eða annan hátt. Fyrir kosningar á síðasta ári var það eitt af kosningaloforðum, sérstaklega Framsfl., að taka upp flutningsjöfnun eða að jafna flutningskostnað í landinu. Kannski hefur Framsfl. náð inn þeim þingmanni sem vantaði upp á til að halda ríkisstjórnarmeirihlutanum með þeim sviknu loforðum sem hér eru. Nú skal leggja niður einu flutningsjöfnunina sem verið hefur, flutningsjöfnun á sementi.
Ef við lítum á skýrslu PriceWaterhouseCoopers sem nefndin hafði til stuðnings við þá ákvörðun sína að leggja niður flutningsjöfnunina þá stendur þar, með leyfi forseta:
,,Sement er um margt sérstök vara þar sem hlutfall flutningskostnaðar í verði þess er mjög hátt. Sérhæfð flutningatæki þarf um mestalla sementsflutninga.
Sökum hás flutningskostnaðar mun fjarlægðarvernd leiða til þess að hugsanlegar einokunaraðstæður gætu skapast á landsbyggðinni. Ástæðan er sú að Akranes liggur mun nær mestallri landsbyggðinni en Helguvík. Aðstöðumunur kann því að verða á sementsmarkaðnum.
Veruleg hækkun mun verða á sementsverði á landsbyggðinni, samanber meðfylgjandi yfirlit um flutningsjöfnun á árinu 2003. Lækkun verðs á höfuðborgarsvæðinu mun ekki verða í neinu samræmi við þá hækkun.
Órökstutt er að flutningsjöfnun sements hafi leitt til óhagkvæmari flutninga. Þvert á móti má segja að flutningsjöfnunin geti leitt til hagkvæmari flutninga en ella.
Rangt er skýrt frá í skýrslu nefndarinnar að bæði fyrirtækin sem selja sement hér á landi séu að byggja upp og breyta dreifingarkerfum og birgðastöðvum sínum og að ljóst sé að þær verði á mörgum stöðum á landinu og í fleiri en einum landsfjórðungi. Einungis hefur verið byggð upp birgðastöð á Reyðarfirði í tengslum við virkjana- og stóriðjuframkvæmdir. Óvíst er hvort sú birgðastöð verði til staðar að framkvæmdum loknum.
Áhrif afnáms flutningsjöfnunar á byggingarkostnað á landsbyggðinni verður mun meiri en gefið er til kynna í áliti nefndarinnar.
Jöfnun flutningskostnaðar á sementi hefur virkað og jöfnunin hefur verið réttlát. Vandað hefur verið til allra úttekta sjóðsins á flutningskostnaði og mikil reynsla hefur skapast í því sambandi í gegnum árin. Hannað hefur verið öflugt tölvukerfi til að fylgjast með og halda utan um flutningsjöfnunina.
Ekki er hægt að sjá annað en að í dag sé hægt að kaupa sement á sambærilegu verði hvar sem er á landinu. Þá er ekki annað að sjá en að virk samkeppni ríki á sementsmarkaðnum. Í dag hafa neytendur val um það af hverjum þeir kaupa sement. Óvíst er`` --- segir í skýrslunni --- ,,að slíkar aðstæður verði uppi ef flutningsjöfnunarsjóður sements verður aflagður.``
Skýrsla þessi er unnin og undirrituð af endurskoðanda flutningsjöfnunarsjóðs sements í umboði Ríkisendurskoðunar.
Þetta er umsögnin um þær gjörðir ríkisstjórnarinnar, að afnema einu flutningsjöfnunina sem hefur þó verið í gildi. Hvaða afleiðingar mun það hafa? Það mun m.a. hafa í för með sér að sement mun hækka bara vegna þessa um u.þ.b. 35% á Norðausturlandi og 50% á Austfjörðum samkvæmt þeim upplýsingum sem komu fram í nefndinni. (Iðnrh.: 50%?) Já. Ég held að hæstv. ráðherra hafi bara ekki áttað sig á hvað hér er að gerast og hæstv. ráðherra getur hlegið og flírað að því. Þetta er eina jöfnunin sem hefur þó enn verið í gangi. Gefin hafa verið fyrirheit um víðtækari aðgerðir til jöfnunar á flutningskostnaði í landinu. Ekki hefur verið staðið við neitt af því. Skýrslum hefur verið safnað, gefin kosningaloforð, ekki staðið við orð. Það eina sem lagt er til er að afnema þá litlu flutningsjöfnun sem hefur þó verið í gangi varðandi sement.
Frú forseti. Þetta er alveg með eindæmum en er í eðlilegum takti við vinnubrögð hæstv. byggðamálaráðherra. Einu er lofað en þegar kemur að efndunum eru þær engar. Flutningsjöfnun var lofað fyrir kosningar, hæstv. ráðherra, hvar eru þau loforð? Þeim var stungið strax undir stól og ekkert bólar á neinu í þeim efnum.
Það voru unnar skýrslur í samgrn. og verkefnið síðan falið byggðamálaráðherra. Ekki bólar á neinum aðgerðum. Eina sem lagt er til er að afnema flutningsjöfnun á sementi sem hefur þó verið við lýði og hefur skilað árangri samkvæmt hlutlausri úttekt. Það skal leggja niður.
Frú forseti. Vinstri hreyfingin -- grænt framboð er á móti frv. Hún er á móti þeirri hugsun sem felst í frv., að fella út einu flutningsjöfnunina sem er þó enn í gildi. Við hefðum viljað að tekið væri raunhæft á jöfnunaraðgerðum í flutningskostnaði í landinu en verk ríkisstjórnarinnar er að auka þann ójöfnuð sem þar er og fella niður þá litlu jöfnun sem hefur þó verið eins og á sementi.