Jón Gunnarsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að það var lítil sannfæring í varnarræðu hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar þegar hann lýsti því af hverju hann hefði skipt algjörlega um skoðun í málinu. Við höfum heyrt hann færa þau varnarrök fyrir sinnaskiptum sínum að sátt hafi orðið um það við Landssamband smábátaeigenda að fara í þetta kerfi. Hann kvaðst hafa verið ósáttur við frumvarp hæstv. sjútvrh. þegar það var lagt fram og ákvað að Landssamband smábátaeigenda skyldi fara í að ræða við sjútvrn. og sjútvrh., höfunda frv., og ef þeir væru sáttir við niðurstöðuna mundi hann fylgja því.
Ég minni á að forsvarsmenn Landssambands smábátaeigenda segjast gáttaðir á því að svo skuli komið að við blasi að Alþingi ætli að afnema sóknardagakerfið. Hvernig getur hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson hengt sig á að Landssamband smábátaeigenda sé sátt við þessa niðurstöðu?