Bryndís Hlöðversdóttir:
Virðulegur forseti. Ég held að mikil áhöld séu um hvort sú aðferð sem ríkisstjórnin hefur valið standist yfirleitt, ég vil segja hvort tveggja stjórnarskrá og þingsköp en sennilega munum við fá betri tíma til að ræða það síðar.
Hins vegar hefur komið í ljós að hugmyndaflugi þessarar ríkisstjórnar eru lítil takmörk sett þegar kemur að því að reyna á þanþol stjórnarskrárinnar. Þjóðinni var að tilhlutan forseta lýðveldisins falið á hendur löggjafarvald í tilteknu máli, eins og stjórnarskráin gerir ráð fyrir, hvort sem það tíðkast í öðrum löndum eða ekki.
Ríkisstjórninni var falið það einfalda hlutverk að hrinda í framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Henni er það verkefni einfaldlega ofviða. Dögum saman horfðum við á forustumenn stjórnarflokkanna þrátta um hversu miklar skorður væri heimilt að setja á atkvæðagreiðsluna og á þjóðina án þess að ganga of langt þannig að það bryti í bága við stjórnarskrá. Þeir gátu ekki einu sinni komið sér saman um skorðurnar. Þjóðin fylgdist agndofa með þessu dögum saman og beið spennt eftir lendingunni. Nú er niðurstaðan komin. Ríkisstjórnin þorir ekki að leggja fjölmiðlamálið í dóm þjóðarinnar eins og stjórnarskráin gerir þó ráð fyrir að gera eigi. Þess í stað á að fresta vandamálinu út kjörtímabilið. Þá á þjóðin náðarsamlegast að fá að kjósa um þetta mikla og erfiða mál í almennum kosningum, að því er mönnum skilst. Málskotsréttinum er ýtt til hliðar, gegn skýru ákvæði stjórnarskrárinnar, skýrum bókstaf 26. gr. stjórnarskrárinnar. Á meðan á fjölmiðlamarkaðurinn að bíða í fullkominni óvissu um örlög sín.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hafði ekki burði til þess að ráða fram úr einföldu verkefni á borð við það sem nú liggur fyrir og það er dapurleg staða. Sú skrumskæling á lýðræðinu sem við sjáum birtast í málsmeðferð ríkisstjórnarinnar í þessu máli er mjög alvarleg. Ég er þeirrar skoðunar að ef ekki verði gengið nú þegar til atkvæðagreiðslu um málið, eins og stjórnarskráin gerir ráð fyrir, sé aðeins ein leið til að losa þjóðina úr þeirri spennitreyju sem meiri hlutinn hefur komið henni í, þ.e. að fella þetta umdeilda frv. úr gildi og ekki orð um það meir.
Það að hefja 4. umr. um málið á hinu háa Alþingi stenst hins vegar ekki, virðulegi forseti.