Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Hæstv. forsrh. skírskotaði til veraldarsögunnar. Ég held að í veraldarsögunni séu ekki mörg dæmi um ríkisstjórn sem kemur fram gagnvart þjóð sinni á þann hátt sem þessi ríkisstjórn gerir. Ég held að það séu ekki mörg dæmi um forsætisráðherra sem hefur önnur eins viðhorf til mismunandi sjónarmiða og til lýðræðisins og núverandi hæstv. forsrh. hefur.
Þegar menn lýsa sjónarmiðum sínum, setja fram skoðanir sínar, þá er verið að setja fram skilyrði. Þá er slegið í borðið og fundi slitið. Þetta er lýsingin á fundi oddvita ríkisstjórnarflokkanna með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna í júní. Þar var boðið upp á samstarf af hálfu stjórnarandstöðunnar. Því var hafnað. Hins vegar var okkur skýrt frá því að þing skyldi koma saman á þessum degi, 5. júlí, og helst ekki standa lengur en í eina viku.
Því var einnig lýst yfir að fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla skyldi fara fram í fyrri hluta ágústmánaðar. Þessu var afdráttarlaust lýst yfir. Allt þetta hefur komið fram í fjölmiðlum en ég sé ástæðu til að árétta það nú í ljósi þeirra atburða sem við stöndum nú frammi fyrir.
Við þekkjum öll atburðarásina frá því í gær. Í upphafi héldu menn að nýsamþykktum fjölmiðlalögum yrði vikið til hliðar, þau yrðu numin úr gildi. Nú er að koma í ljós að menn ætla með offorsi með sömu löggjöf í gegnum þingið og blekkja þjóðina, fara aftan að þjóðinni, hafa af henni stjórnarskrárvarinn lýðréttindi.
Stjórnarandstaðan hefur lagt fram frv. á Alþingi um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Við leggjum áherslu á að það mál verði tekið til afgreiðslu hið fyrsta.