Forseti (Halldór Blöndal):
Þær óvæntu fregnir bárust í morgun að hæstv. forsrh. Davíð Oddsson hefði verið fluttur í sjúkrahús í nótt vegna veikinda. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra alþingismanna þegar ég sendi honum og fjölskyldu hans hlýjar kveðjur Alþingis með óskum um góðan og skjótan bata.