Jónína Bjartmarz (andsvar):
Herra forseti. Mér gefst ekki tími til að svara þeim dylgjum sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson hóf mál sitt á. En ég vil af þessu tilefni endurtaka það og vekja athygli á því sem segir í áliti meiri hlutans og geta þess við hv. þm. að í I. og II. kafla stjórnarskrárinnar eru 30 greinar og biðja hann um að fara rétt með í máli sínu í ræðustól.