Frsm. minni hluta allshn. (Össur Skarphéðinsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. þm. orðaði það svo og það var a.m.k. ekki hægt að skilja hann með öðrum hætti en þeim að hann hefði talið að þar sem menn hefðu orðið þess áskynja eða hann taldi sig hafa orðið þess áskynja að forseti Íslands hefði með einhverjum hætti efasemdir um frv. þá hefði hann átt að láta það uppi við annaðhvort ríkisstjórn eða þing. Það getur ekki falið í sér annað en að hv. þm. Halldór Blöndal sé þeirrar skoðunar að í slíkri stöðu hefði meiri hluti Alþingis átt að fara í einhvers konar viðræður við forseta lýðveldisins um hvað hann gæti hugsanlega sætt sig við.
Það er algerlega andstætt stjórnarskrá. Það er algerlega andstætt þeirri hugsun sem við höfðum um tvískiptingu lagasetningarvaldsins þegar stjórnarskráin var sett. Og það er með ólíkindum að heyra forseta Alþingis gera því skóna að það sé í lagi að framselja vald í auknum mæli og jafnvel oft til (Forseti hringir.) forsetans með þessum hætti. Ég skil þetta ekki.