Þingfrestun

Fimmtudaginn 22. júlí 2004, kl. 12:05:00 (9651)

2004-07-22 12:05:00# 130. lþ. 138.94 fundur 648#B þingfrestun#, utanrrh.
[prenta uppsett í dálka] 138. fundur, 130. lþ.

[12:05]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég les forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykkis Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 130. löggjafarþings, frá 22. júlí 2004 til septemberloka.

Gjört á Bessastöðum, 22. júlí 2004.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------------

Halldór Ásgrímsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 130. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.