Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Fimmtudaginn 02. október 2003, kl. 21:12:14 (21)

2003-10-02 21:12:14# 130. lþ. 2.1 fundur 37#B stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana#, ÁÓÁ
[prenta uppsett í dálka] 2. fundur, 130. lþ.

[21:12]

Ágúst Ólafur Ágústsson:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Það er skrýtin tilfinning að setjast á Alþingi í fyrsta skipti. Ég vona að með nýrri kynslóð á Alþingi verði nauðsynleg viðhorfsbreyting þar sem látið verði af sérhagsmunagæslu og kostnaðarsömu kjördæmapoti. Við þurfum ætíð að spyrja okkur að því hvernig við gerum samfélag okkar betra.

Frelsi, jafnrétti og bræðralag voru kjörorð frönsku byltingarinnar. Þessi hugtök hafa verið leiðarljós jafnaðarmanna alla tíð síðan. Hægt er að nálgast öll úrlausnarefni samtímans út frá þeirri fallegu hugmyndafræði sem birtist í þessum þremur orðum. Frelsi er fyrsta hugtak okkar jafnaðarmanna, en Samfylkingin metur frelsi einstaklingsins mikils. Við viljum þó ekki aðeins frelsi á markaði, heldur einnig frelsi frá fátækt og fáfræði. Þar skiptir öflugt menntakerfi mestu máli.

Íslendingar eru ekki eins vel menntaðir og margir halda. Tæplega helmingur hvers árgangs lýkur einungis grunnskólaprófi, sem er mun verri staða en hjá nágrannaþjóðum okkar. Samfylkingin vill koma til móts við fólk sem vill hefja nám að nýju og auka fjölbreytileika með iðn-, verk- og listnámi, enda er brottfall úr framhaldsskólum óvíða meira en hérlendis. Ríkisstjórnin vill hins vegar auka miðstýringu og fækka valmöguleikum.

Samkvæmt nýjustu tölum OECD er Ísland einungis í 14. sæti þegar útgjöld á hvern nemanda í skólakerfinu eru borin saman. Menntamál hafa aldrei verið forgangsmál núverandi ríkisstjórnar.

[21:15]

Við þurfum frelsi í viðskiptum, ríkisvaldið á ekki að vasast í hlutum sem einstaklingarnir eru fullfærir um að sinna. Við þurfum ekki ríkisfjölmiðil sem drepur allt einkaframtak með þátttöku sinni á auglýsingamarkaði. Fjárfestingar útlendinga í íslensku hagkerfi eru til góðs, líka í sjávarútvegi þar sem við erum sérfræðingar á heimsmælikvarða.

Hæstiréttur Bandaríkjanna kallaði eitt sinn samkeppnislög ,,stjórnarskrá atvinnulífsins``. Samkeppnisstofnun mun hins vegar áfram búa við fjársvelti af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin ber því beina pólitíska ábyrgð á seinagangi þeirra mála sem þar eru til skoðunar og hugsanlegri fyrningu brota.

Jafnrétti er annað hugtak sem er jafnaðarmönnum hugleikið. Tæplega helmingur allra kvenna sem nú sitja á þingi kemur úr einum flokki, Samfylkingunni. Kynbundinn launamunur er þó enn til staðar og staða einstæðra feðra er oft bágborin. Samkynhneigðir einstaklingar búa enn ekki við full réttindi í okkar samfélagi. Við eigum að jafna vægi allra kjósenda, hvar sem þeir búa, með því að gera landið að einu kjördæmi. Gera þarf kaup á vændi refsivert og þyngja refsingar við grófum ofbeldis- og kynferðisafbrotum, enda hefur réttarvitund almennings fengið sig fullsadda af óréttlátum dómum.

Bræðralag er þriðja meginstef jafnaðarstefnunnar. Við eigum að gæta okkar minnsta bróður. Gleymum því aldrei að á bak við tölfræði er einstaklingur með þrár, vonir og tilfinningar. Það er grunnskylda samfélagsins að sinna sjúkum sómasamlega ásamt því að tryggja viðunandi úrræði fyrir aldraða. Erfitt er að rökstyðja önnur ríkisútgjöld þegar þessir hlutir eru í ólestri, eins og nú er.

Góðir Íslendingar. Ég sé samfélag sem er á rangri braut á mörgum sviðum. Það er eitthvað að samfélagi sem lætur ríkisstjórn komast upp með það að hafa málefni geðsjúkra, og meira að segja geðsjúkra afbrotamanna, í uppnámi ár eftir ár. Það er eitthvað að samfélagi sem lætur ríkisstjórn komast upp með það að láta hundruð samborgara okkar betla mat og nauðsynjavörur í viku hverri hjá hjálparstofnunum. Og það er eitthvað að samfélagi sem lætur ríkisstjórn komast upp með að draga sig inn í ólögmætt árásarstríð á mjög hæpnum forsendum.

Það er einnig rangt hjá samfélaginu að láta ríkisstjórn komast upp með að neita að samþykkja sjálfsögð lög um fjármál stjórnmálaflokka. Samfélag okkar er ekki á réttri leið þegar seðlabankastjóri er skipaður á árinu 2003 samkvæmt flokksskírteini og hæstaréttardómari ráðinn sem augljóslega var ekki hæfasti umsækjandinn.

Frelsi, jafnrétti og bræðralag eru grunnstefin í frjálslyndri jafnaðarstefnu. Þessi grunnstef geta gert samfélag okkar betra. Hjörtu Íslendinga slá í takt við hugtök jafnaðarstefnunnar. Ég er jafnaðarmaður vegna þeirra hugsjóna sem felast í þessum hugtökum. Samfylkingin ætlar í vetur og næstu ár að sannfæra sem flesta landsmenn, og þó einkum ungt fólk, um mikilvægi þess að jafnaðarstefnan verði í forustu í íslenskum stjórnmálum. --- Ég þakka þeim sem hlýddu.