Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson, sem jafnframt er hugmyndafræðingur Sjálfstfl. í fjármálum, miklaði sig af því hvað það hefði gengið vel að markaðsvæða samfélagið undir forustu Sjálfstfl. og minntist ekki á að Framsfl. hefði verið neitt til trafala í þeim efnum á undanförnum árum og átti ekki frekar von á því. Þá fannst mér athyglisvert og hann kom líka mjög rækilega að því að þessi fjárlög mörkuðu mjög skýra stefnu í að hliðra til, eins og hann sagði, í samfélaginu á næstu árum. Og við höfum séð það hér að það er einmitt í heilbrigðiskerfinu sem á að hliðra til. Taka upp komugjöld á heilsugæslustöðvum, hækka þau, taka upp aukin notendagjöld hvar sem því verður við komið. Þetta kemur okkur ekkert á óvart.
En ég vil spyrja hv. þm. hvar muni verða rutt til í atvinnulífinu. Við sjáum hvernig gengisþróunin hefur verið. Fyrir þetta ár var gert ráð fyrir að gengi krónunnar væri 130 en hefur verið lengst af árinu 120--124, og gengið hefur haft gríðarleg áhrif á útflutningsatvinnuvegina, ekki síst á sjávarútveginn, útflutning í landbúnaði og útflutning iðnaðarvara.
Hvað mun gerast? Hvernig er hægt að verja útflutningsgreinarnar þessum ruðningsáhrifum á næstu árum ef gengið heldur áfram að hækka og vextir einnig sem væntanlegt er? Til hvaða aðgerða vill hv. þm. að gripið verði til til að verja útgerðina, sjávarútveginn, iðnaðinn og fiskiðnaðinn vítt og breitt um landið sem er nú þegar í miklum vandræðum? Útflutningsgreinarnar eru í miklum vandræðum vegna óhagstæðrar gengisþróunar á síðustu mánuðum.