Fjárlög 2004

Föstudaginn 03. október 2003, kl. 18:15:23 (132)

2003-10-03 18:15:23# 130. lþ. 3.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2004# frv., fjmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 130. lþ.

[18:15]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):

Þetta er náttúrlega alveg ótrúlegur málflutningur, hv. þm. og herra forseti. Þú hefur ekkert í höndunum um þetta annað en ágiskanir þínar sem þú ert að reikna aftan á umslagi (Gripið fram í.) hérna í bakherbergi. Ég legg því til að við öflum okkur báðir gleggri upplýsinga um þetta áður en lengra er haldið í fullyrðingum um efni þessa máls. Og ég sé að þingmaðurinn er sammála þessari niðurstöðu minni.