Fjáröflun til vegagerðar, vörugjald af ökutækjum o.fl.

Þriðjudaginn 07. október 2003, kl. 19:17:46 (269)

2003-10-07 19:17:46# 130. lþ. 5.4 fundur 90. mál: #A fjáröflun til vegagerðar, vörugjald af ökutækjum o.fl.# (hækkun þungaskatts og vörugjalds) frv., fjmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 130. lþ.

[19:17]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):

Frú forseti. Það liggur fyrir í langtímaáætlun ríkisstjórnarinnar hvað er verið að tala um varðandi skattalækkanir sem komnar verða að fullu til framkvæmda á árinu 2007. Þar er talað um u.þ.b. 20 milljarða á ári þaðan í frá. Síðan bið ég þingmanninn að reikna.