Tekjuskattur og eignarskattur

Fimmtudaginn 09. október 2003, kl. 14:31:02 (403)

2003-10-09 14:31:02# 130. lþ. 8.3 fundur 88. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (sérstakur tekjuskattur, viðmiðunarfjárhæðir o.fl.) frv., fjmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 8. fundur, 130. lþ.

[14:31]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil eingöngu benda þingmanninum á að reyna að átta sig betur á þeim grundvallarmun sem er á skammtímavöxtum og langtímavöxtum hér í landi og myndun þeirra, því það hefur hann greinilega ekki gert.