Helgi Hjörvar (andsvar):
Virðulegur forseti. Hæstv. fjmrh. fer sem fyrr að hann kýs að halda sig við umræðu um einhverja hluti sem kannski munu gerast í framtíðinni og hvort skammtímavextir eftir einhver ár eða langtímavextir verði hærri eða lægri. Hann forðast eins og heitan eldinn að ræða það sem er að gerast núna og það sem núna brennur á fjölskyldufólki í landinu. Það sem núna brennur á því er að sá sami hæstv. forsrh. Davíð Oddsson og lofaði fólkinu í landinu því fyrir nokkrum mánuðum síðan að hann ætlaði að hjálpa því við að lækka skuldir sínar alveg sérstaklega með því að lækka skattana, ætlar núna að hirða af fólkinu í landinu 600 milljónir í vaxtabætur og auka þannig sérstaklega skattheimtu á þeim sem helst ætti að styðja í lífsbaráttunni, ungu fjölskyldufólki sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið.