Fjárhagslegur aðskilnaður útgerðar og fiskvinnslu

Mánudaginn 13. október 2003, kl. 15:52:54 (464)

2003-10-13 15:52:54# 130. lþ. 9.4 fundur 5. mál: #A fjárhagslegur aðskilnaður útgerðar og fiskvinnslu# þál., Flm. GAK (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 130. lþ.

[15:52]

Flm. (Guðjón A. Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um fjárhagslegan aðskilnað í rekstri útgerðar og fiskvinnslu. Tillaga þessi hefur verið flutt áður í hv. Alþingi án þess að hljóta endanlega afgreiðslu og er því mörgum hér inni kunnug, en ég ætla nú samt að fara nokkuð yfir efni hennar. Í tillögunni segir svo:

,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa þriggja manna nefnd sem fái það verkefni að semja frumvarp til laga um fjárhagslegan aðskilnað milli reksturs útgerðar annars vegar og fiskvinnslu í landi hins vegar. Frumvarpið verði lagt fram á þessu þingi og að því stefnt að lögin taki gildi 1. janúar 2005.

Lögunum verði ætlað að skapa skilyrði til eðlilegrar verðmyndunar á öllum óunnum fiski á markaði og stuðla að heilbrigðum og gegnsæjum viðskiptaháttum í fiskviðskiptum, og koma þannig á eðlilegum samkeppnisskilyrðum á því sviði.``

Svofelld greinargerð fylgir með þessari þáltill.:

,,Núgildandi lög og reglur fela í sér að gerðar eru miklar kröfur um siðareglur í viðskiptum, virka samkeppni á markaði og gegnsæi hans. Lögleiðing samkeppnislaga, nr. 8/1993, markaði tímamót á þessu sviði. Einnig má vísa til þess að Ísland er bundið af samkeppnisreglum ESB vegna aðildar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og hefur sú skuldbinding víðtæk áhrif í íslenskum lögum og reglum. Sem dæmi um viðbrögð löggjafans má nefna þingsályktun um setningu siðareglna í viðskiptum á fjármálamarkaði sem samþykkt var á 125. löggjafarþingi, en þar voru hafðar til hliðsjónar reglur framkvæmdastjórnar ESB.

Í greinargerð þeirrar þingsályktunartillögu segir m.a.: ,,Markmið reglnanna er að gefa viðmið fyrir siðlegt athæfi alls staðar á því svæði sem þær ná til, greiða fyrir virkri starfsemi verðbréfamarkaða og gæta almannahagsmuna.`` Á öðrum stað segir: ,,Til þess að hann [þ.e. verðbréfamarkaðurinn] megi þróast eðlilega allri þjóðinni til hagsbóta er nauðsynlegt að hlúa að heilbrigðum og gagnsæjum viðskiptaháttum á öllum fjármagnsmarkaðinum.

Fullvíst má telja að viðskiptalegt umhverfi verslunar með óunninn fisk hér á landi fullnægir ekki settum kröfum EES-samningsins um virka samkeppni.``

Þingsályktunartillaga þessi á sér meginstoðir í lögbundnum markmiðum gildandi samkeppnislaga og er ætlað að þjóna þeim, en í 1. gr. laganna segir:

Lög þessi hafa það markmið að efla virka samkeppni í viðskiptum og þar með vinna að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins. Markmiði þessu skal náð með því að:

a. vinna gegn óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri,

b. vinna gegn óréttmætum viðskiptaháttum, skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum,

c. auðvelda aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.

Einnig má vísa til ýmissa annarra ákvæða samkeppnislaganna, svo sem 10. og 11. gr., og að auki er vert að benda á ákvæði 14. gr. en þar segir:

Þegar um er að ræða opinbert fyrirtæki eða fyrirtæki sem starfar að einhverju leyti í skjóli opinbers einkaleyfis eða verndar er samkeppnisráði heimilt að mæla fyrir um fjárhagslegan aðskilnað, annars vegar á milli þess hluta rekstrar fyrirtækisins sem nýtur einkaleyfis eða verndar og hins vegar þess hluta rekstrar sem er í frjálsri samkeppni við aðra aðila. Skal þess gætt að samkeppnisrekstur sé ekki niðurgreiddur af einkaleyfis- eða verndaðri starfsemi.

Sé fullrar sanngirni gætt verður ekki annað séð en að framangreind ákvæði 14. gr. eigi fyllilega við um þann mikla aðstöðumun sem skapast milli útgerðarfyrirtækja sem árlega fá úthlutað aflaheimildum og njóta þannig verndar með slíkum stjórnvaldsbundnum leyfum og hins vegar fiskvinnslufyrirtækja sem engrar slíkrar verndar njóta en starfa í óheftri samkeppni á markaði.

Með vísan til framangreindra ákvæða samkeppnislaga hlýtur það ástand sem nú ríkir og varað hefur um árabil á markaði um kaup og sölu á óunnum fiski, og alkunnugt er hvernig er háttað, að teljast óviðunandi. Engin skilyrði eru til eðlilegrar verðmyndunar á fiski og ótruflaðrar samkeppni í fiskviðskiptum þrátt fyrir að í landinu hafi um árabil starfað uppboðsmarkaðir fyrir fisk.

Fiskviðskipti við núverandi kringumstæður skapa ófrið um verðlagningu á fiski milli sjómanna og útvegsmanna og grafa einnig undan tilvistargrundvelli innlendra fiskmarkaða. Skiptir þá ekki meginmáli hvort um viðskipti milli óskyldra eða skyldra aðila er að ræða. Þá ríkir mikil samkeppnisleg mismunun í fiskvinnslunni sem bitnar hart á fiskvinnslufyrirtækjum sem ekki tengjast útgerð.

Enda þótt sá fiskur sem kemur til sölu á íslenskum fiskmörkuðum seljist að öllu jöfnu á mjög háu verði ríkir samt sem áður mikill fiskskortur á mörkuðunum. Í stað þess að selja fiskinn hæstbjóðanda leita útgerðir í auknum mæli eftir svokölluðum ,,beinum viðskiptum``. Þá er samið um fast verð á fiskinum sem er langt undir ríkjandi verði á mörkuðum, oftast aðeins um helmingur eða jafnvel minna.

Ástæðurnar fyrir slíkum viðskiptum er að finna í ákvæðum gildandi laga um fiskveiðistjórn sem heimila frjálst framsal aflaheimilda án þess að slíku framsali séu settar nægilegar skorður og enn mun framsalið og þessi viðskipti aukast með kvótasetningu smábátaflotans.

Þessi ,,beinu viðskipti`` verða vegna þess að útgerð viðkomandi fiskiskips sér sér hag í því að leggja aflann upp hjá fiskverkanda með þeim skilmálum að hluti aflaverðmætis greiðist með peningum en hinn hlutinn með því að fiskverkandi kaupi veiðiheimildir á viðkomandi skip, eða leggi þær fram og fénýti á þennan hátt, hafi hann yfir slíkum heimildum að ráða. Aflahlutur áhafnar miðast síðan aðeins við þann hlutann sem greiddur er með peningum og sama máli gegnir um lögboðin gjöld, svo sem hafnargjöld. Raunverðið á fiski í þessum viðskiptum, þegar allt er talið, er hins vegar í fullu samræmi við ríkjandi verð á fiskmörkuðum á sama tíma.

,,Viðskipti`` milli útgerðar og fiskvinnslu í eigu sama aðila eru að því leyti sama marki brennd og viðskipti milli óskyldra aðila að viðmiðunarverðið á fiskinum til hlutaskipta er a.m.k. að mestu leyti úr öllum tengslum við ríkjandi markaðsverð. Eigandinn, þ.e. viðkomandi fyrirtæki, er því í raun með þessu að flytja fjármuni frá útgerðinni til fiskvinnslunnar. Hvort sem fiskviðskiptin eiga sér stað milli óskyldra aðila eða innan sama fyrirtækis verður niðurstaðan sú sama, falskt fiskverð sem knúið er fram í krafti þeirrar stöðu sem útgerðin hefur með yfirráðum sínum yfir veiðiheimildum. Hérlendis ríkir feluleikur og óljósir viðskiptahættir um sjávarfang þar sem mörg viðskiptaform eru aldrei upplýst.

Fénýting veiðiheimilda í viðskiptum með fisk yrði bönnuð.

Núverandi ástand í fiskviðskiptum með svo brengluðu verðmyndunarkerfi, eins og fyrr er lýst, er algjörlega óhæft. Þær ráðstafanir sem Alþingi greip til árið 1998 með setningu laga um stofnun Kvótaþings og Verðlagsstofu skiptaverðs, og ætlað var að færa ástand þessara mála til betra horfs, hafa samkvæmt fenginni reynslu mistekist með öllu. Lögin um kvótaþing hafa nú verið afnumin án þess að bæta ástandið og á upplýsingavef Fiskistofu sést að uppgefið leiguverð á óveiddum fiski er algjör markleysa. Því er brýnt að löggjafinn grípi inn í að nýju með því að áskilja með lögum fullan fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu. Af sjálfu leiðir að í slíkri löggjöf fælist algjört bann við því að veiðiheimildir yrðu fénýttar í viðskiptum með fisk.

Þjóðhagsleg hagkvæmni veiða og vinnslu mundi aukast.

Þessa fullyrðingu mætti rökstyðja í löngu máli en verður ekki gert hér, enda ætti þess ekki að gerast þörf. Þingsályktunartillaga þessi miðar að því, eins og áður segir, að koma á eðlilegri samkeppni í viðskiptum með fisk. Virk samkeppni er árangursríkasta leiðin til þess að ná sem hagkvæmastri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins eins og kveðið er á um í 1. gr. gildandi samkeppnislaga. Löng reynsla annarra þjóða af virkri samkeppni sem árangursríkustu leiðinni til eðlilegra viðskiptahátta talar skýru máli. Til lengri tíma litið má því einnig telja fullvíst að breytingin yrði til góðs fyrir atvinnugreinina hér á landi.

[16:00]

Eins og ég gat um hefur þáltill. þessi verið flutt áður og sömu aðilar flutu hana, þ.e. sá sem hér stendur og hv. þm. Jóhann Ársælsson. Á fyrri þingum voru Svanfríður Jónasdóttir og Árni Steinar Jóhannsson einnig flutningsmenn.

Sjómannasamband Íslands hefur tekið afstöðu til þeirrar tillögu sem hér er flutt og á 23. þingi Sjómannasambandsins var svofelld tillaga samþykkt, með leyfi forseta:

,,23. þing Sjómannasambands Íslands krefst þess að lög verði sett um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu. Eins og staðan er í dag getur kaupandi og seljandi afla verið einn og sami aðilinn sem í krafti einokunaraðstöðu sinnar ákveður verðið. Slíkur viðskiptamáti hlýtur að brjóta í bága við lög um heilbrigða samkeppni og góða viðskiptahætti. Eðlilegt hlýtur að teljast að allir fiskkaupendur hafi sama möguleika á að kaupa þann fisk sem leyfilegt er að veiða úr takmarkaðri auðlind. Fyrsta skrefið til að koma á eðlilegum viðskiptaháttum með fisk er að aðskilja veiðar og vinnslu fjárhagslega sem leiðir til þess að allur afli verði seldur á fiskmarkaði.``

Þessi ályktun Sjómannasambands Íslands er algjörlega í samræmi við þá hugsun sem er í þeirri tillögu sem við höfum flutt og hefur verið rædd áður í þessum þingsölum.

Virðulegi forseti. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða það að íslenskir útgerðarmenn þurftu aldrei á því að halda til að gera út skip sín að hafa frjálst framsal á veiðiheimildum sín á milli. Þeir þurftu aldrei á leigu- og söluréttinum á aflakvótanum að halda til þess að að halda áfram eðlilegri og sjálfsagðri útgerð. Það fyrirkomulag sem tekið hefur verið upp hér á landi með aflakvótanum og framseljanleika þeirra hefur valdið miklum erfiðleikum vítt og breitt um landið og mun valda áfram eins og við höfum reyndar komið aðeins inn á hér fyrr í dag. Það kerfi sem við búum við mun aldrei búa til sátt með þjóðinni og það mun heldur ekki nást sátt við sjómannasamtökin með því að hafa þá verðlagningu og verðlagningarfyrirkomulag sem verið hefur á undanförnum árum þar sem tvenns konar verð ríkir algjörlega hér á landi.

Ég veit að margir hv. þm. hafa fengið bréf frá Samtökum fiskmarkaða þar sem þau benda á stöðu sína og hvað þau telja að betur megi fara. Ég tel að það sé orðið meira en tímabært hér á landi að við tökum upp sams konar fyrirkomulag og tekið hefur verið upp í löndunum í kringum okkur að langmestu leyti, að fiskmarkaðarnir sjái um verðlagningu fisks. Hitt er svo annað mál að menn geta þurft að setja margar kröfur á fiskmarkaðinn um það að flokka fiskinn, að stærð hans liggi fyrir, að gæði hans liggi fyrir o.s.frv. Það er allt vinnulag sem auðvitað er hægt að taka upp og samræma en það hefur einmitt líka mikið verið gert af því á undanförnum árum að samræma meðferð og sölumál á íslenskum fiskmörkuðum.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa lengra mál um þessa tillögu, hún skýrir sig sjálf. Við flutningsmenn teljum að það sé afar nauðsynlegt að mynda hér þá vegferð fyrir málið að sett verði lög um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu. Vonandi leiddi það þá til þess fyrr en síðar að sem mest af aflanum færi á ferskfiskmarkaði vegna þess að þá væri kominn á fjárhagslegur aðskilnaður. Það er ekki sjálfgefið þó að menn eigi útgerð og fiskvinnslu að sömu hlutafar séu beggja megin þannig að hagsmunir manna eru ekki þeir sömu útgerðarmegin og fiskvinnslumegin. Þar af leiðandi ætti að koma upp eðlileg þróun og ákvörðun um það að fiskverð taki eðlilegum verðmyndunum hér á landi eins og samkeppnisreglur kveða á um.