Bygging menningarhúsa á landsbyggðinni

Miðvikudaginn 15. október 2003, kl. 14:14:05 (590)

2003-10-15 14:14:05# 130. lþ. 11.3 fundur 68. mál: #A bygging menningarhúsa á landsbyggðinni# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., SigurjÞ
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 130. lþ.

[14:14]

Sigurjón Þórðarson:

Frú forseti. Ég er ósammála hæstv. ráðherra um að stór skref hafi verið stigin. Ég furða mig reyndar algerlega á því hvað er hægt að lofa sömu hlutunum oft og hvað Sjálfstfl. ætlar að hjala og mala lengi um þessi menningarhús. Er ekki kominn tími til að láta verkin tala?