Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Mikil umræða hefur orðið í þjóðfélaginu á þessu og síðasta ári um vaxandi fátækt á Íslandi. Upplýsingar hafa komið fram hjá hjálparstofnunum og frá Félagsþjónustu sveitarfélaga sem sýna að æ fleiri þurfa að leita sér neyðaraðstoðar til að eiga til hnífs og skeiðar eða til þess að geta leitað sér læknishjálpar eða leyst út lyfin sín. Í þeim hópi er einnig í vaxandi mæli að bætast við fullvinnandi fólk sem á ekki fyrir framfærslunni.
Á síðasta kjörtímabili kom glögglega í ljós að ríkisstjórnin vildi sem minnst af þessu máli vita og erfitt var að fá nokkra umræðu við ráðherra síðustu ríkisstjórnar um fátækt, og m.a. neitaði hæstv. forsrh. því ítrekað að ræða þessi mál utan dagskrár. Afskiptaleysi ríkisstjórnarinnar og sinnuleysi gagnvart fátækum birtist ekki síst í því að atvinnuleysisbætur hækkuðu nánast ekkert og lífeyrisþegar fengu ekki hækkun á lífeyri sínum í samræmi við hækkanir hjá öðrum þjóðfélagshópum. Þessi þögn ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðherra var orðin æpandi þegar þeir loksins sáu sig tilneydda til þess að skipa sérstaka ráðherranefnd í málið í janúar sl. Síðan hefur ekkert heyrst frá ríkisstjórn eða einstaka ráðherrum um þetta mál ef undan er skilið að þeir töluðu fallega til fátækra rétt fyrir kosningar. Það er því fullt tilefni, herra forseti, til þess að leggja fyrirspurn fyrir hæstv. félmrh. um niðurstöðu þessarar ráðherranefndar um fátækt. Ég geri ráð fyrir að hæstv. ráðherra hafi kynnt sér helstu ástæður fátæktar sem fram komu í skýrslu ASÍ sem kynnt var fyrir kosningar. Ég man að formenn allra flokka voru þá boðaðir á fund þar sem þessi skýrsla var kynnt og tekið var vel undir þær aðgerðir sem ASÍ lagði til, sem voru bráðaaðgerðir til þess að koma til móts við þá sem búa við skort. Ástæður fátæktar sem nefndar eru í skýrslunni eru mikill húsnæðisskortur og skortur á félagslegu húsnæði, hátt verðlag á nauðsynjavörum, lágar atvinnuleysisbætur, félagsleg staða margra einhleypra karla, en þeir eru stærsti hópur þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, lágar bætur og miklar tekjutengingar og að kaupmáttaraukning bóta hafi verið minni en almennra launa á liðnum árum hjá þessum hópi. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra:
1. Hver er niðurstaðan af starfi ráðherranefndar um fátækt sem skipuð var að tilhlutan fyrrverandi félagsmálaráðherra og hafði það verkefni að skilgreina vandann sem við er að etja vegna fátæktar og finna leiðir til úrbóta?
2. Hverjir eiga sæti í ráðherranefndinni, hve marga fundi hefur hún haldið og til hvaða aðila hefur nefndin leitað vegna samráðs og upplýsinga í starfi sínu?
3. Hver er skoðun ráðherra á stöðu fátækra, telur ráðherra að grípa þurfi þegar til sérstakra aðgerða til að bæta kjör þeirra og þá hvaða aðgerða?