Happdrætti Háskóla Íslands

Fimmtudaginn 16. október 2003, kl. 10:38:59 (646)

2003-10-16 10:38:59# 130. lþ. 12.9 fundur 140. mál: #A Happdrætti Háskóla Íslands# (endurnýjað einkaleyfi) frv., dómsmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 12. fundur, 130. lþ.

[10:38]

Dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Ég flyt hér frv. til laga um breyting á lögum um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13 13. apríl 1973.

Frv. gengur út á það að framlengja einkaleyfi happdrættisins til þess að reka happdrætti til 1. janúar 2019.

Háskóli Íslands hefur haft einkarétt til rekstrar peningahappdrættis hér á landi síðan 1934, sbr. lög nr. 44 19. júní 1933. Hefur happdrættið síðan að langmestu leyti staðið undir öllum byggingarframkvæmdum og tækjakaupum Háskóla Íslands og þannig verið honum ómetanleg lyftistöng, en jafnframt hefur happdrættið að sama skapi sparað ríkissjóði útgjöld. Frumvarpið miðar að því að Happdrætti Háskóla Íslands verði gert kleift að fullnægja óskum viðskiptavina sinna og tryggja þar með að það geti enn sem fyrr verið fjárhagslegur bakhjarl Háskóla Íslands.

Sá háttur hefur verið hafður á að lagaheimild til einkaleyfisveitingarinnar hefur verið bundin til 10 eða 15 ára í senn. Núgildandi heimild, sem endurnýjuð var til 15 ára með lögum nr. 23 5. maí 1986, rennur út 1. janúar 2004. Er því brýnt að hún verði endurnýjuð nú og lagt er til að það verði gert til 15 ára.

Jafnframt er rétt að benda á að hugsanlega getur þurft að stytta leyfisveitinguna ef breyta þarf skipan happdrættismála hér á landi, svo sem ef alþjóðlegar reglur kalla á slíkar breytingar.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til hv. allshn.