Flm. (Bryndís Hlöðversdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég held að það sé nú alltaf þannig þegar farið er af stað með stórar samkomur, ég ætla í sjálfu sér ekki að fara að svara fyrir hæstv. umhvrh. varðandi umhverfisþingið, það má eflaust gagnrýna ýmislegt í þeirri framkvæmd. Ég tel hins vegar mikilvægt að það komi hér fram að þarna fór fram gagnleg umræða og ég a.m.k. fann fyrir jákvæðum straumum þarna. Varðandi val á ræðumönnum o.s.frv., hópstjórum, þá hef ég í sjálfu sér ekki farið ítarlega yfir hvort það hefði mátt vera einhvern veginn öðruvísi. En ég held að fátt sé svo gott að ekki megi gagnrýna það á einhvern hátt. En mér fannst umræðan þarna vera góð. Mér fannst líka þátttakan vera mjög breið. Það var kannski það sem ég var svolítið hrifin af. Þetta var mjög fjölmennt þing, þrátt fyrir að það væri á virkum degi, það hefur vissulega takmarkað eitthvað aðgang þeirra sem ekki eiga heimangengt á slík þing á vinnutíma. Þarna var mjög breiður hópur sem tók þátt, allt frá miklum þekktum náttúruverndarsinnum yfir í t.d. mikla virkjunarsinna og Landsvirkjun o.s.frv. Þannig að allir þeir, eða mjög margir, sem hafa komið að umræðu um náttúruvernd, landnýtingu, virkjanir o.s.frv., voru þarna og tóku þátt í umræðunni og það er það sem mér þótti mjög glæsilegt á þessu þingi.
Að öðru leyti vil ég þakka hv. þm. fyrir að taka undir efni þeirrar tillögu sem hér er til umræðu og hef í sjálfu sér ekki meira um það að segja. Við erum greinilega sammála um mikilvægi þess verkefnis sem hér er lagt til að ráðist verði í.