Stuðningur við sjálfstæði Færeyja

Þriðjudaginn 28. október 2003, kl. 13:45:17 (811)

2003-10-28 13:45:17# 130. lþ. 15.91 fundur 98#B stuðningur við sjálfstæði Færeyja# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 130. lþ.

[13:45]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill láta í té frekari upplýsingar um stöðu stjórnsýslunnar vegna fjarveru hæstvirtra ráðherra í opinberum erindum á Norðurlandaráðsþingi. Hæstv. landbrh. gegnir jafnframt störfum utanrrh. Það liggur þá líka fyrir.