Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Vegna þessara umræðna vil ég aðeins vekja athygli á því að það hefur þrásinnis komið fyrir að þingmenn hafa óskað eftir umræðum utan dagskrár um skýrslur Ríkisendurskoðunar og ég man ekki eftir að því hafi verið synjað.