Bryndís Hlöðversdóttir (andsvar):
Frú forseti. Eins og ég sagði áðan vil ég í sjálfu sér fagna því og mér þykir gott að vita að málið sé tekið til gagngerrar skoðunar núna í hv. allshn. Ég ítreka einungis að þá liggur það í frumkvæði nefndarinnar sem slíkrar og það er ekki alltaf þannig að tekið sé jafn vel á því. Það veltur svolítið á því hvort áhugi sé fyrir hendi og þá gjarnan hjá formanni nefndarinnar að gera það. Ég hvika þess vegna ekki frá því að ég teldi þessum farvegi betur við komið á þann hátt að þetta væri skylt að gera, taka skýrsluna til skoðunar og að hv. allshn. mundi síðan gefa skýrslu til þingsins þannig að við mundum vita það að öruggt væri að farið væri ítarlega ofan í efni skýrslunnar. Ég held að það sé mjög gott að það verði gert núna og ég líka fagna því enn og aftur að tekið sé tillit til þeirrar ábendingar umboðsmanns að gera mætti bragarbót á með því að auka stjórnsýslufræðsluna sem ég tek undir og held að sé mjög mikilvægt að gera.