Stækkun NATO

Mánudaginn 03. nóvember 2003, kl. 15:04:34 (1004)

2003-11-03 15:04:34# 130. lþ. 19.1 fundur 112#B stækkun NATO# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 130. lþ.

[15:04]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Árna Stefánssyni fyrir þessa spurningu. Málið liggur þannig fyrir að það hefur verið lagt fram eða kynnt í ríkisstjórn og eins fyrir þingflokkum stjórnarflokkanna og ég geri ráð fyrir því að hæstv. utanrrh. muni mæla fyrir málinu alveg á næstunni. Ég veit til þess að ráðuneytið er í sambandi við þingið um heppilegan tíma fyrir flutning á þessum málum og er viss um að það verður góður og mikill stuðningur við málið hér.