Reglur um dráttarvexti

Mánudaginn 03. nóvember 2003, kl. 15:33:11 (1026)

2003-11-03 15:33:11# 130. lþ. 19.1 fundur 118#B reglur um dráttarvexti# (óundirbúin fsp.), fjmrh.
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 130. lþ.

[15:33]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ég skal viðurkenna það fúslega að ég kann ekki þessar reglur utan að. Það er auðvitað hægt að kynna sér þær með því að grafast fyrir um þau mál. Það gilda sérstök lög um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda og eftir þeim er farið í sambandi við slík mál.