Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Mánudaginn 03. nóvember 2003, kl. 18:27:39 (1075)

2003-11-03 18:27:39# 130. lþ. 19.8 fundur 191. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# (meðferð hlutafjár) frv., forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 130. lþ.

[18:27]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Það stendur aldrei til í mínum flokki að kalla annarra manna flokka til á landsfundi okkar til að halda þar ræður. Hins vegar er það árátta hjá Samf., sem getur ekki notið sín sæmilega nema fá tvo flokksbundna sjálfstæðismenn til að vera aðalnúmer á fundinum. Það gerist ekki hjá okkur að við leitum til andstæðinga með þeim hætti. Við erum nægilega vel mannaðir, (Gripið fram í.) báðir eru flokksbundnir í Sjálfstfl. og eru þar (KLM: Dyggir og góðir jafnaðarmenn.) dyggir og góðir sjálfstæðismenn, eins og þú veist. Við erum á ýmsum sviðum einnig jafnaðarmenn, það er líka rétt.