Frsm. meiri hluta landbn. (Drífa Hjartardóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Helga Hjörvar fyrir góð orð í minn garð og hv. landbn. Mér er bæði ljúft og skylt að setja kút og kork á hæstv. landbrh. ef með þarf, við erum nefnilega í sama liðinu. Allar brtt. sem eru við frv. eru gerðar í fullu samráði bæði við landbrn. og umhvrn. eins og ég hef getið hér um áður og frv. hefur aðeins batnað.
En hvað það varðar sem hv. þm. Helgi Hjörvar kom að í ræðu sinni þar sem hann sagði að meiri hlutinn hefði ekki hlustað á tillögur minni hlutans í landbn., þá komu einfaldlega engar tillögur þar fram, engar efnislegar tillögur, brtt., komu fram í nefndinni. Hv. frsm. minni hluta landbn. hefur greint frá því að þær muni koma á milli 2. og 3. umr. en við höfum ekki séð þær breytingar enn þá.