Jón Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Reikningskúnstirnar, hæstv. ráðherra, sem ég beitti hér heita plús og mínus. Svo einfalt er það. Tölurnar sem ég setti inn í þá reikniformúlu sem hér var notuð komu frá hæstv. ráðherra. Ef það eru kúnstir að setja inn tölu og draga frá aðra tölu sem báðar eru hér staðfestar á þskj. 237 verð ég bara að viðurkenna á mig kúnstir. Svo einfalt er það.
Oddviti Vatnsleysustrandarhrepps er ekki á móti fiskeldi. Hann hefur aldrei verið á móti fiskeldi. Hann hefur reyndar aldrei talað fyrir hafbeit vegna þess að það var á bernskuárum hans sem hafbeitin var og hét, en það fiskeldi sem fram fer í Vatnsleysustrandarhreppi er allt á landi. Það er allt í tönkum á landi og reyndar allt sjávardýraeldi en þó ekki eldi á bleikju eða laxi.
Ég er ekki á móti fiskeldi. Ég vil alls ekki að orð mín séu þannig skilin. En ég vil að þeir aðilar sem stunda fiskeldi gæti þess að villtum stofnum fiska hér á Íslandi verði ekki hætta búin. Ef um það er að ræða að þessi miklu afföll sem fram koma í svari hæstv. landbrh. séu að einhverju leyti vegna þess að fiskur syndir út úr kvíunum vill sá sem hér stendur vita það og þá vill sá sem hér stendur að við öll sem hér erum sameinumst um að setja lög og reglur sem passi upp á íslenska laxinn.