Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Þetta vildi ég fá fram til að þingið og þjóðin þekktu þennan þingmann. Hann segir já og nei í málinu. Hann vill vanda sig þannig að við erum að því leyti samherjar, hv. þingmaður og sá landbrh. sem sett hefur ströngustu reglur um víða veröld gagnvart fiskeldi. Þakka ég honum það að koma fram í hið rétta dagsljós.