Lax- og silungsveiði o.fl.

Fimmtudaginn 06. nóvember 2003, kl. 16:07:08 (1352)

2003-11-06 16:07:08# 130. lþ. 22.6 fundur 111. mál: #A lax- og silungsveiði o.fl.# (staðfesting bráðabirgðalaga) frv. 116/2003, Frsm. meiri hluta DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 22. fundur, 130. lþ.

[16:07]

Frsm. meiri hluta landbn. (Drífa Hjartardóttir) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vildi bara koma því að í andsvari mínu að fólkið í landinu fengi ekki þá mynd af fiskeldinu í Mjóafirði að þar væri allt í ólagi. Varðandi þær tölur sem komu frá landbrn. eru það þeir sem svarið hafa gefið sem bera ábyrgð á því. Það gerir ekki sú sem hér stendur.