Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég sé alltaf betur og betur þegar ég hlusta á hv. þm. hvað lögfræðin er skemmtilegt svið sem spannar vítt yfir, hvað menn geta verið frjálslyndir í henni og lært margt, bæði svart og hvítt og hika ekki við að slá því fram. En það er auðvitað málflutningur sem ekki gengur upp. Auk þess að fara frjálslega með lögfræði sem hv. þm. veit að er með allt öðrum hætti en hann lýsir, þá ástundar hann dálítið að segja kjaftasögur, þær eru oft skemmtilegar en þær eiga heldur ekki við í þessu máli. Hann vill gera mikið úr því að umhvrh. og landbrh. séu ósáttir sem er bara hrein firra. Ég stend með umhvrh. í rjúpunni og barðist með henni hérna í þinginu á dögunum og geri það áfram.
Þannig er málum háttað að Hafrannsóknastofnun er líffræði- og vísindastofnun hafsins. Veiðimálastofnun er vísindastofnun ánna og vatnanna. Náttúrufræðistofnun er vísindastofnun á þurru landi. Samt sem áður kemur Náttúrufræðistofnun að t.d. erfðanefnd landbúnaðarins og kemur þess vegna inn í þeirri brtt. sem landbn. flytur. En það eru víða gagnvegir í þessu.
Ég hef farið ítarlega yfir hvers vegna bráðabirgðalögin voru sett og gerði það af einlægni, en þegar menn eru hér aðeins eða tala og hlusta ekki þegar maður svarar þá er erfitt að eiga við það að vera alltaf að tyggja sömu ræðuna. Hv. þm. skammaði mig nú sérstaklega á dögunum fyrir að flytja alltaf sömu ræðuna, hann vildi hafa þær fjölbreyttar og nýjar. Ég vísa til þinggagna, rök mín eru skráð þar. Ég hef farið vel yfir það hvers vegna bráðabirgðalögin voru sett og hv. þm. veit að það var þjóðréttarleg skuldbinding. Ísland stefndi fyrir dómstóla í Evrópu og var talið að íslenska perlan í norðri uppfyllti ekki heilbrigðiskröfur og heilbrigðisástand í dýrum að mati ESB. Það var mjög alvarlegt ástand fyrir Íslendinga.