Forseti (Jónína Bjartmarz):
Forseti vill vekja athygli hv. alþingismanna á því að forsætisráðherra Namibíu, herra Theo-Ben Gurirab, er staddur á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forsætisráðherra Namibíu er hér í opinberri heimsókn í boði forsrh. Davíðs Oddssonar. Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forsætisráðherra Namibíu, Theo-Ben Gurirab, velkominn í Alþingishúsið og vænti þess að heimsókn hans til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli landa okkar.
Alþingi vottar forsætisráðherra Namibíu og namibísku þjóðinni vináttu og virðingu og ég bið hv. alþingismenn um að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]