Þuríður Backman:
Frú forseti. Ég vil taka undir þá skoðun hv. fyrirspyrjanda að langvarandi deilur og erfiðleikar við ráðningu heilsugæslulækna hafi haft áhrif á nýliðun og áhuga ungra lækna til þess að fara í sérnám í heimilislækningum. Vonandi sér fyrir endann á þessu eins og má ætla miðað við þær upplýsingar að nú séu nokkrir ungir læknar að fara í framhaldsnám á þessu sviði.
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort viðurkenning á sérfræðiréttindum heilsugæslulækna, þ.e. að þeir geti starfað sjálfstætt utan heilsugæslustöðvanna og viðurkenning á því að fleiri stöðugildi vantar en rúmast núna innan heilsugæslustöðvanna á höfuðborgarsvæðinu muni leiða til þess að framtíðinni verði tvö kerfi í gangi, þ.e. heilsugæslustöðvar úti á landi og tvöfalt kerfi í Reykjavík þar sem það er alveg ljóst að sjálfsætt starfandi heimilislæknar verða ekki starfandi utan höfuðborgarsvæðisins.