Heilsugæslumál

Miðvikudaginn 12. nóvember 2003, kl. 15:25:26 (1554)

2003-11-12 15:25:26# 130. lþ. 26.6 fundur 227. mál: #A heilsugæslumál# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., Fyrirspyrjandi SÞorg
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 130. lþ.

[15:25]

Fyrirspyrjandi (Sigurrós Þorgrímsdóttir):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og greinargóð svör. Ég er mjög ánægð að heyra það að Salastöðin eigi að opna í janúar, því eins og flestir vita hafa heilsugæslumálin legið nokkuð þungt á Kópavogsbúum, kannski sérstaklega þeim sem hafa verið án læknis. Ég þakka fyrir góð og skýr svör.