Fyrirspyrjandi (Mörður Árnason):
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svör hans og fagna því að þetta skuli vera á dagskránni. Raunar er furðulegt að þetta skuli ekki koma fyrr en hér er lýst, að miðað sé við að þetta verði á næsta ári. En um rengið, sem er nú varasamt, menn meta og harma það ýmsir minna en sjálft kjötið, það mun þó liggja fyrir í desember og væntanlega þá frá Hafrannsóknastofnun eða hvað? En ég hygg að sú ákvörðun hafi nýlega verið tekin.
Það skiptir auðvitað miklu máli fyrir okkur, um leið og við fögnum þeim samanburði sem fengist hefur á sjávarfangi okkar og Norðmanna, að við höfum þessar upplýsingar ævinlega tiltækar í bæði baráttu okkar fyrir að standa á rétti okkar og í því að selja vöru okkar, og líka í þeirri sölu sem innan lands er viðhöfð. En núverandi opinberar leiðbeiningar til vanfærra kvenna eru þær að borða ekki hrefnukjöt oftar en tvisvar í viku, og er hrefnan þó, eins og hv. þm. Össur Skarphéðinsson benti á, tiltölulega neðarlega eða neytir fæðu tiltölulega neðarlega í fæðukeðjunni og er því ekki vettvangur þeirrar samsöfnunar sem ofar gerist í henni, svo sem væntanlega er í öðrum þeim hvalategundum sem menn hafa undir forustu m.a. hæstv. sjútvrh. í hyggju að veiða hér á næstu áratugum, hvað sem um það svo má segja.